Forever var stofnað árið 1978 og byggðist þá einkum á draumum og mikilli vinnu. Nú er það orðið að stórfyrirtæki sem veltir milljörðum Bandaríkjadala. Höfuðstöðvarnar eru í Scottsdale í Arizonafylki í Bandaríkjunum og þaðan er stjórnað framleiðslu á fjölbreyttum heilsu- og fegrunarvörum. Fólk á borð við þig sér um að dreifa þessum lífsstyrkjandi vörum til neytenda og í því felst gullið tækifæri til að eignast eigin rekstur og öðlast sjálfstæðan fjárhag á grundvelli þrautreyndrar viðskiptaáætlunar. Forever Living hefur á sínum vegum yfir 9 milljónir dreifingaraðila í um 145 löndum og býður einstakt tækifæri til að bæta heilsufarið og efnahaginn í senn.
Rex Maughan þóttist viss um það að lífið hefði upp á fleira að bjóða en slítandi brauðstritið eitt saman. Hann hóf leitina að því sem honum virtist mestu skipta; leið að bættri heilsu og leið að fjarhagslegu sjálfstæði.
Árum saman leitaði Rex að leið til að láta þetta tvennt ganga upp í sameiningu en gerði sig aldrei ánægðan með það sem rak á fjörur hans. En árið 1978 bauð hann til fundar í Tempe í Arizona þar sem hann greindi fundargestum frá áætlunum sínum um það með hvaða hætti væri unnt að öðlast betri heilsu og bættan efnahag í senn.
Rex lýsti þarna hinni einföldu viðskiptahugmynd sinni fyrir vinum og venslafólki. Hún fólst í grundvallaratriðum í því að nýta persónuleg samskipti og tengsl til að bjóða neytendum vandaðar vörur sem hefðu góð áhrif á heilsufar þeirra. Í stað þess að verja miklu fé í hefðbundar auglýsingar væri betra að nota peningana í sölulaun til þeirra sem væru fúsir til að selja slíkar vörur í sínu nærsamfélagi.



